Skilmálar

Almennar upplýsingar:

Rudi Ehf.
Kennitala: 610119-0180
Viðarhöfði 2, 110 Rvk.
rudi@rudi.is

Persónuupplýsingar: Við öflum persónuupplýsingum um þig eingöngu til að þjónusta þig.
Þessar upplýsingar: Nafn, heimilisfang, símanúmer og tölvupóstur er eingöngu notað til afgreiðslu á pöntunum. 

Einu skiptin sem við deilum gögnunum um þig er ef vara er send í pósti. Þá þarf flutningsaðili að fá upplýsingar um þig til að geta komið sendingunni til þín.

Kaupsaga viðskiptavinar er læst inná öruggu svæði, eingöngu til að þjónusta viðskiptavin varðandi síðustu pöntun. Tími sem pöntun er geymd til uppflettingar eru 365 dagar.

Rudi ehf geymir engar greiðsluupplýsingar viðskiptavina.

Verð:
Öll verð eru uppgefin í íslenskum krónum með virðisauka og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. 

Verð í netverslun geta breyst án fyrirvara.

Greiðsla og öryggi:
Hægt er að greiða fyrir vörur af rudi.is með eftirfarandi hætti

  1. Kreditkorti: Visa og Mastercard í gegnum örugga greiðslugátt hjá SaltPay
  2. Millifærslu: Upphæð pöntunar millifærð í gegnum banka/heimabanka.

Merkingar: 
Merktum vörum fæst hvorki skipt né skilað.

Afhendingarmáti/sendingarkostnaður:

  1.  Sótt í verslun (0 kr.) 
    Tilkynning er send með tölvupósti þegar pöntun er tilbúin til afhendingar.
  2. Pósturinn - Sent á pósthús/póstbox (1230 kr.) Vara er send með íslandspósti á næsta pósthús.
  3. Pósturinn - Sent heim (1.850 kr.)  Vara er send með íslandspósti heim að dyrum. Ef viðkomandi er ekki heima fer sendingin á næsta pósthús. Athugið að Jói útherji ber ekki ábyrgð á því ef að heimkeyrsla er ekki í boði í þínu bæjarfélagi. Kynntu þér málið á https://www.postur.is/

Afhending:

Viðskiptavinur er látin vita þegar hann getur nálgast pöntunina sína í verslunum okkar.

Póstsendingar eru sendar með Íslandspósti innan 1-3 daga eftir að greiðsla pöntunar er staðfest.
Undantekningar á þessu ferli eru t.d. ef vara er ekki til eða um forpöntun er að ræða.
Athugið að þega pöntun er farin af stað frá okkur getum við ekki haft áhrif á sendingartíma. 

Skilaréttur:
Almennur skilafrestur á vöru er 30 dagar.
Það á við um: Ónotaða vöru í heilum upprunalegum umbúðum og gegn framvísun kvittunar.
Rudi ehf metur ástand skilavöru og söluhæfi hennar. Við áskiljum okkur rétt til hafna skilavöru sé ofantöldum atriðum ábótavant.

Þegar viðskiptavinur skilar eða skiptir vöru er sendingarkostnaður á ábyrgð kaupanda.
Útsöluvöru fæst ekki skilað. En hægt er að skipta útsöluvöru fyrir aðra útsöluvöru.

Galli:

Ef vara reynist gölluð, bætum við sjálfsögðu úr því með því að eftirtöldum kostum: 1. laga vöruna  2. með nýrri ógallaðri vöru 3. sambærilegri vöru eða 4. endurgreiðslu. 

Galla á vöru ber að tilkynna eins fljótt og hægt er. Annaðhvort með tölvupósti eða með því að hringja til okkar.

Myndgæði og myndabrengl:

Við reynum að hafa myndir í góðum gæðum svo þú sjáir vöruna eins og hún er. En því miður er ekki alveg hægt að ábyrgjast að litbrigði séu 100% eins og varan sést á þínum tölvuskjá.